Merkurlautarrækt

Dverg-Schnauzer


80

Velkomin á Merkulautarræktun.

Við erum með níu dverg-Schnauzera, 8 svarta og einn pipar og salt. Þrír rakkar og 6 tíkur, en 2 tíkur eru ekki til undaneldis. Hundarnir okkar eru allir gæludýr, lifa með fjöldskyldunni og eins allir hvolparnir okkar.

Upphafið

Hundar hafa alltaf verið stór hluti í lífi okkar. Þeir hafa verið óaðskiljanlegir félagar og veita okkur ómælda ánægju og gleði. Eftir að við kynntumst smáhundum, og þá sérstaklega snösum, var ákveðið að kanna möguleikann á því að flytja inn svarta smá-snasa, þar sem enginn var til fyrir á landinu. Við fundum Tínó fljótt. Hann bjó hjá yndislegu fólki í Danmörku sem eiga m.a. mömmu hans. Hann var alinn upp sem einn af fjölskyldunni og það skilar sér í dag. Eftir langa dvöl í Hrísey fékk hann loksins að koma til okkar og vera gæludýrið okkar.

Markmið ræktunar

Markmið ræktunar okkar er að rækta snasa sem eru eins nálægt standardlýsingu og hægt er.

Við viljum reyna að halda inni þessum frábæra stífa og svarta feldi sem Perla og Tínó hafa verið að gefa.

Skapgerð er ekki minna mál þegar kemur að ræktun og við ætlum að leggja mikla áherslu á að rækta eingöngu undan ljúfum og skemmtilegum hundum því við erum þeirrar skoðunar að hundur sem hefur gott skap er og verður eiganda sínum alltaf til ánægju.

Þegar kemur að vaxtarlagi er alltaf  um smekksatriði að ræða, þó  að stærð sé að sjálfsögðu inní standardlýsingu  þá eru þrátt fyrir það skiptar skoðanir á hvessu stór eða lítill dverg-schnauzerinn á  eða má vera.

Okkar skoðun er að það skipti kannski mestu máli hvessu vel hundurinn  samsvarar sér og hefur það ekkert verið á stefnuskrá okkar að rækta afarsmáa hunda. Okkur hefur fundist hundar sem eru ca 33 cm á herðakamb vera þeir hundar sem hafa komið hvað best út.

En umfarm allt þá viljum við halda áfram á þeirri braut sem við erum á  þ.e. að rækta ljúfa og fallega snasa, sem eru tegundinni til sóma.

Við ætlum okkur ekki að metta markaðinn af snösum né fjöldaframleiða hvolpa.

Umhverfi hundanna

Hundarnir eru inni á heimilinu okkar og eru stöðugt í snertingu við alla fjölskyldumeðlimi og hvern annan. Þeir fara reglulega upp í sumarbústað með okkur, í heimsóknir, gönguferðir og hitta nýtt fólk reglulega. Allir hvolpar ræktunarinnar alast upp í sama umhverfi. Þeir eru vanir að ferðast í bíl, vanir að hitta nýtt fólk, vanir venjulegri umgengni inni á heimili.

Gæðaloforð

Merkurlautarræktun er skráð hjá hjá Hundaræktarfélaginu sem er meðlimur í Federation Cynologique Internationale (FCI).

Nýlegar fréttir

Hvolpa-fréttir
Lesa
Myndir úr sveitinni
Lesa
Hvolpa fréttir
Lesa
Myndir af hvolpaskottum
Lesa
Hvolpa-fréttir
Lesa
Hundar á borði